.:: árgangur ´84 í Sandgerði ::.

22.07.2008 21:18:43 / fermd98

Fermó - myndir # 2

Heil og sæl öll sömul!

Vil byrja á að þakka kærlega fyrir síðast, ég skemmti mér konunglega! Vona að það sama gildir um ykkur:)

Til hamingju með littla erfingjann Jói!:) Það bætist sífellt í barnahópinn hjá árganginum:)

Ætla að láta nokkrar myndir fylgja með.. Þær eru misjafnar í gæðum en vildi leyfa ykkur að sjá þær engu að síður..

Enjoy!

















































Kærlig hilsen,

.:Rebekka:.

» 13 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 21:25:50 / fermd98

Vel heppnað kvöld!

Heil og sæl öll sömul!

Mig langaði bara að skrifa hér nokkrar línur og þakka fyrir laugardagskvöldið... Það var rosa gaman að sjá smettin á ykkur öllum ;) við höfum bara ekkert breyst! hehe... Þar sem að ég, Óskar og Ástþór (er það ekki rétt munað hjá mér) erum í nefnd fyrir næsta afmæli sem er eftir 5 ár, verður maður að fara að huga að þessu, því þetta er eitthvað til að toppa! hehe... Set hérna inn nokkrar myndir sem ég tók, (ekki taka því persónulega ef það er ekki mynd af þér þarna, ég fór snemma heim) hehe... 8)

KISS KISS Íris Edda....







































» 13 hafa sagt sína skoðun

04.06.2008 09:46:58 / fermd98

3 DAGAR!!

Þá styttist heldur betur í þetta hjá okkur og það er allavega svaka spenningur í gangi hjá okkur og ég vona að þið séuð jafn spennt!! ;)
Það er mjög fín þáttaka, maður veit að það komast aldrei allir en það stefnir í að við verðum 20-22 sem er bara mjög gott :haha:
Vildi bara svona láta ykkur vita af gangi mála og þetta verður alveg svakalegt stuð hjá okkur :d
Við ætlum semsagt að hittast kl. 17:00 í skólanum, semsagt við kennarainnganginn...

Þið sem ekki komist við skulum reyna að taka einhverjar myndir handa ykkur en við lofum ekki neinu :þ

Ég hlakka bara rosalega til að hitta ykkur öll á laugardaginn og allir að muna eftir góða skapinu!!

Arna Vala

» 16 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 08:44:14 / fermd98

ATHUGIÐ!!

Þeir sem ætla að mæta og eiga eftir að borga verða að gera það í dag! Fólk er alls ekki búið að vera nógu duglegt við það og ef þetta verður svona þá getum við ekki gert mikið:cry: Þetta verður að gerast í dag svo við getum gengið frá því sem við þurfum að gera því það er svo skemmtilegur laugardagur framundan hjá okkur 8)

Vinsamlegast látið þetta berast!!

Hlakka til að sjá ykkur á laugardaginn! :d

Arna Vala

» 8 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 08:43:32 / fermd98

ATHUGIÐ!!

Þeir sem ætla að mæta og eiga eftir að borga verða að gera það í dag! Fólk er alls ekki búið að vera nógu duglegt við það og ef þetta verður svona þá getum við ekki gert mikið:cry: Þetta verður að gerast í dag svo við getum gengið frá því sem við þurfum að gera því það er svo skemmtilegur laugardagur framundan hjá okkur 8)

Vinsamlegast látið þetta berast!!

Hlakka til að sjá ykkur á laugardaginn! :d

Arna Vala

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 18:34:48 / fermd98

Upplýsingar!!

Það er alveg að koma að þessu og vona ég að þið hafið öll fengið skilaboð um að leggja inn pening...og eins og þið sáuð þá verður það að gerast fyrir 3. júni.

Þeir sem ekki fengu skilaboð látið vita hérna í skoðunum og skiljið símanúmerið ykkar eftir lika.

Innifalið i þessu verði er semsagt salurinn, matur og blómvöndur sem lagður verður á leiðið hjá Gumma okkar.

Við ætlum að hittast kl. 17:00 laugardaginn 7.júní fyrir utan Grunnskólann okkar. Þaðan verður farið út í kirkjugarð og síðan aftur upp í skóla og hann skoðaður. Við ætlum bara að sameina okkur í bíla þannig að vonandi koma einhverjir á bílum.
Síðan verður gert smá hlé og svo hittumst við í Mánagrund kl 20:00 og ætlum að eyða kvöldinu þar saman og þar verður sko ýmislegt brallað :haha:
Þeir sem ætla að fá sér eitthvað í aðra tánna koma með sitt eigið áfengi sjálf en auðvitað verður gos og þannig slíkt á boðstólunum :d
Makar eru velkomnir eftir kl 23:00

Ég vona að þetta séu þessar helstu upplýsingar sem þið vilduð vita annars er bara að spurja í skoðunum.

Annars hlakka ég bara svakalega til að hitta ykkur öll og munið bara eftir góða skapinu (strákarnir sérstaklega..hehe djók:lol:)

Arna Vala

» 20 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 11:17:33 / fermd98

7. júní!

Eins og áður hefur komið fram þá var smá kosning í gangi um dagssetningar fyrir afmælið okkar og við ákváðum það að meirihlutinn skyldi bara ráða og það voru flestir sem kusu 7. júní og það verður því haldið þá :haha:
Vona að sem flestir munu mæta því við ætlum að hafa mjög gaman öll saman :lol:
En auðvitað verður þetta betur auglýst seinna...en eru ekki allir geðveikt spenntir?? ;)

Vonum bara að veðrið verði mjög gott og svo er náttúrulega algjört must að koma með góða skapið :p

Hlakka til að sjá ykkur
(það er náttla ennþá soldið í þetta en tíminn líður nú ekkert smá fljótt...eins og þið hafið kannski tekið eftir, við eigum nú 10 ára fermingarafmæli, finnst nú ekki vera 10 ár síðan! )

Arna Vala

» 13 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 20:45:53 / fermd98

Smá frestun...

Halló allir saman! :haha:
Mér þykir leiðinlegt að tilkynna ykkur það að við verðum að fresta afmælinu okkar i smástund...það er nefnilega þannig að við vorum búin að undirbúa alla dagskránna og ætluðum að fara að panta sal og þá bara úps það eru fermingar daginn eftir!! Sem þýðir bara það að allir salir eru fráteknir á þessum tíma :( og hvað gerum við þá?? :$
Við nefndin ákváðum því bara að setja inn 3 dagssetningar hérna og leyfa ykkur að vera með í að velja dag og verður bara sá dagur sem fær mestu atkvæðin valin...verið því dugleg að kommenta hérna og láta það berast til fólks ;)
Ok þetta eru semsagt dagssetningarnar:

Laugardagurinn 3. maí
Laugardagurinn 10. maí ( hvítasunnuhelgin)
Laugardagurinn 7. júní


En dagskráin er allavega tilbúin og því þurfum við bara að ákveða dag, þannig að hvað segið þið??

» 32 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 22:28:05 / fermd98

Undirbúningur...

Jæja heldur betur líður tíminn hratt! En enn og aftur er það fermingarafmælið okkar sem ég hlakka svo mikið til!;) Hvernig lýst fólki á fyrstu helgina i apríl? Veit að Villi verður á landninu þá en spurning með Guðlaugu... Og hvenar eigum við að fara að hittast og undirbúa þetta? Hvaða tími hentar best fyrir ykkur? Endilega verið dugleg að kommenta um þetta...svo er kannski fínt lika að fá að vita hvað fólk er tilbúið að borga upp á að vita hvað við getum gert :)

Hlakka til að heyra frá ykkur

Arna Vala

p.s ætla bara að taka mér það leyfi og segja frá því að Jói verður pabbi í júní minnir mig... til hamingju með það elsku Jói :) 


» 46 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 09:42:24 / fermd98

Fundur fellur niður

Fundur fellur niður
 
Fundurinn sem á að vera á morgun laugardag fellur niður.
 
Eru einhverjar hugmyndir fyrir betri dagsetningu ? Munið að því fyrr, því betra.
 
kv.
Óttar 

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 21:11:00 / fermd98

Fundur á laugardaginn

 

Fyrsti fundur "skemmtinefndar".

Hvar:  Kaffi Duus Keflavík

Hvenær: Kl. 14:00 laugardaginn 1. desember

Hverjir: Allir sem vilja taka þátt í skipuleggja fermingarafmælið okkar.

 

Frábært væri ef einhver sem býr í Sandgerði mundi vilja fara í grunnskólann og fá prentaðan lista yfir alla nemendurnar og koma með hann á laugardaginn.

 Vona að sjá sem flesta.

kv. Óttar

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 14:56:49 / fermd98

Lífgum síðuna við

Sæl veriði

Það eru víst orðnir ansi fáir sem skoða þessa síðu og var ég sjálfur búinn að steingleyma henni.
Það var ekki fyrr en hún Dísa mín var að skoða myspace síðu hjá 84 árganginum í Keflavík. Þar var verið að tala um 10 ára fermingarafmæli og þá mundi ég allt í einu eftir þessari síðu.

Og hvað segið þið þá ?

Eigum við ekki að halda upp á okkar 10 ár í kringum apríl á næsta ári og í Sandgerði ?

Ég skal taka að mér skipulagningu ef ég fæ einhverja vaska einstaklinga með mér í það. Það liggur samt ekkert á að byrja að skipuleggja, en fínt væri að fara að huga að þessum um jólin og hittast jafnvel þá og ræða um þetta.

So who is in ?

kv.
Óttar Birgisson

 PS: verið dugleg að minna alla fædda 1984 úr Sandgerði á þessa síðu.


» 20 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 01:58:50 / fermd98

Sandgerðisdagar

Jæja krakkar... Nú er að koma sandgerðisdagar, og held ég að dagskráin hafi aldrei verið þéttari eða betri.. það  verður bara gaman... Hvað segir liðið á að láta sjá sig??? Aðrir úr bekknum sem eru fluttir í burtu?? Allavega þá er ég flutt í rvk, en ætla auðvitað að mæta á sandgerðisdaga og vona ég að aðrir geri það sama :)

Allavega hlakka til að hitta þá sem láta sjá sig!!!

 

Kv. Fríða  


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 02:23:19 / fermd98

Nýr bumbubúi

Jæja, þá ætla ég að óska Írisi Eddu til hamingju.. Það er leyfilegt þar sem hún er búin að tilkynna:)

Innilega til hamingju Íris!! Vona að allt gangi frábærlega hjá ykkur.. Og að ég hitti þig næst þegar ég kem til landsins. Ég fer að trufla þig á msn, þori bara aldrei að ónáða þig í vinnunni:)

Bestu kveðjur til ykkar allra,

.:Rebekka:.


» 16 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 20:11:13 / fermd98

Meiri haminghuóskir!!:)

Elsku Helgi, innilega til hamingju með prinsinn þinn:) gangi ykkur rosalega vel!

Og svo er Guðlaug Hulda búin að skíra litlu prinsessuna sína en hún hlaut nafnið Wiktoría Rún.

Við erum heldur betur dugleg í þessu flest öll hehe:)

Kveðja....Arna Vala


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Áhugaverðar síður
Minning
Dagsetning
23. febrúar 2012